Vegna aukinna krafna EASA um aðhald og eftirlit með verkfærum ákvað Arctic Maintenance að kaupa handa öllum flugvirkjum félagsins verkfærakistur. Voru kisturnar sér hannaðar og sér valin verkfæri keypt. Kisturnar voru pantaðar í gegnum Vélar og Verkfæri sem er umboðsaðili Snap-On á Íslandi. Skorið var út fyrir öllum verkfærum og P/N fræst í botn skúffunar þar sem hvert verkfæri á heima. Ferlið tók langan tíma en vorum við ekki fyrir vonbrigðum með valið þegar kisturnar lentu. Næst á dagskrá er svo að taka restina af verkfærum fyrirtækisins í gegn.